Skilmálar

 

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum sem dreifðar eru af Íslandspósti gilda
afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Sauna.is ber
samkvæmt þessu ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá sauna.is til viðkomandi er tjónið á
ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer
fram. Þegar neytandi verslar í vefverslun sauna.is er hægt að fá pöntunina heimsenda.

Þegar valið er að fá vöruna heimsenda eða á næsta pósthús er sendingatími að jafnaði 1-3 virkir dagar. Sendingatími er mismunandi eftir því hvar neytandi býr.

Pantanir á höfuðborgarsvæðinu verða keyrðar út af Dropp. Allar pantanir fyrir utan höfuðborgarsvæði munu verða sendar með Íslandspóst eða Dropp. 

Verð reiknast út frá þyngd sendingar.

Vara send með Dropp:
Viðskiptavinur getur valið hvort hann sæki vöru á N1 stöð næst sér eða fá pöntunina sína heimsenda. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi
hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu
umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við
upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð
vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Tækjatækni ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Gölluð vara

Sé vara gölluð hvetjum við kaupandann að hafa samband við okkur. Viðskiptavinum er boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir.

Útsölur og vöruskil:
Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Lög og varnarþing 
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law

Spurningar

Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

Netfang: sauna@sauna.is
Sími: +3545713770

Upplýsingar um seljanda

Tækjatækni ehf

Kt: 630914-2990

Sími:  +3545713770

Netfang: sala@sauna.is

Heimilisfang: Smiðjuvegur 1, 200, Kópavogur, Ísland.